09.01.2008 12:09:09 / baldur
Jæja þá góðir hálsar við erum á lifi hér í koben og er magt buið að drífa daga okkar.
Það er buið að vera skítakuldi hérna hjá okkur samt þrjóskast maður alltaf við og fer út á peysunni eins og veðrið myndi bara breytast úr frosti yfir í hlyju og sól rétt á meðanmaður hleypur niður stigan á leiðinni út þarf eitthvað að endurskoða þetta.
Veðri er samt að skanna þ.e.a.s. ekki eins kalt sem er mjög gott get haldið mig við peysuna.
Við forum til islands um jólinn og var það ekkert smá næs (huggulegt og gott) vorum við með ronnju allan tíman í viku og einnig er hún á leiðinni 15 jan og verður til 3 feb við mikinn fögnuð og ætlum við að reyna að hafa það kosy vi skal hygge os alle sammen.
Ég fór lika og hitti afa og ömmu í keflavík og afi sagði mér að hann læsi alltaf bloggið og var að skamma mig því við erum ekki dugleg að blogga svo ég ætla að verða duglegri núna. Þetta blogg er tilheingað þér um von um skjótan bata með baráttu kveðjum frá koben.
Við forum svo í skírn hjá jochum frænda hennar Aldísar og fengum þessa lika rosalega góðu súpu ég held að ég hafi fengið mér 3 sinnum namm namm.
Maður gerði ekkert annað en að éta þessa viku forum í helling að matarboðum hjá Boggu og tryggva , Mömmu og Didda og Pabba og Önnu og svo forum við í fisk hjá Birni og Ruth. Þökkum við aftur fyrir okkur
Svo fer að styttast í að við komum heim í sumarvinnuna í juni og hlakkar okkur mikið til tale islandsk med islandske mennesker ég verð í eldhúsinu í Grímsá og Aldís sér um að þjóna og önnur þjónustustörf þetta verður vonandi gaman og upplyfun ef maður er í fríi þá getur maður vonandi labbað um í nátturinni eða fengið að fara á bak hjá Agnari og Birnu en þau eru þarna rétt hjá með hetsabúgarð næstum því eins í í DALLAS (þáttunum)
Aldís er hætt á kaffihúsinu og er það mikill léttir fyrir hana enda var henni byrjuð að leiðast hel.. mikið þar og nú er hún starfandi hjá DECO sem er svona fyrirtæki sem sendir hana hingað og þangað að vinna sem henni finnst fínt á eftir að læra helling á koben á þessum seinnustu 5 mánuðum. Lætt þetta duga í bili er að fá krampa í fingurnar en lofa að skrifa fljótt aftur. Hi hi
Búin að setja nokkrar myndir frá því að við vorum á íslandi
»